Þeir sem taka sér fyrir hendur að selja vöru eða þjónustu á Netinu myndu eflaust hugsa sem svo, að þeim mun fleiri sem kæmu inn á vefinn, þeim mun líklegra sé að söluvaran gangi út. Markaðssérfræðingar telja það fjarri sanni. Það er að vísu rétt að almenn aukin vefumferð er af hinu góða en ef meginmarkmiðið er að selja tilteknar vörur á svokölluðum syllumarkaði (niche) skiptir öllu máli að ná til þess markhóps sem áhuga hefur á viðfangsefninu. Lesa meira »
“Niche” markaðssetning er skipulögð aðferð í rafrænum viðskiptum á Netinu og afar fyrirferðarmikil. Í íslenskri þýðingu er talað um syllumarkað og einnig sérmarkað í þessu samhengi. Aðferðin byggist á að ná til markhópa á tilteknu þröngu sviði og tengjast þeim í Netheimum. Ýmislegt bendir til að þessi aðferð í markaðssetningu geti hentað vel þeim sem fást við listsköpun af einhverju tagi og hafa vilja og áræðni til að vinna sjálfir í að koma vörum sínum og þekkingu á markað. Lesa meira »
Þessari spurningu er ekki auðsvarað en er þó eitt hið allra mikilvægasta fyrir rafræn viðskipti á Netinu og raunar alla vefmiðlun. Vefur án umferðar er harla lítils virði. Þó kosta margir miklu til að koma sér upp heimasíðu, eins og það er kallað, án þess að gæta að framhaldinu. Hverjir skoða vefinn? Leiðir hann til aukinna viðskipta, samskipta eða njóta einhverjir góðs af? Lesa meira »
Tengslanet eru kjörin vettvangur til markaðs- og kynningarstarfs á Listatorgi. Slideshare er eitt þeirra. Þú skráir þig einfaldlega, hleður inn kynningarefninu þínu og svo er með auðveldum hætti hægt að birta glærusýningar beint í bloggfærslum hér á Netskrifum.
Ýmsir hafa kynnt þessa ágætu vefþjónustu hér á landi, m.a. Salvör Gissurardóttir, Sigurður Fjalar Jónsson og Hjálmar Gíslason sem heldur úti WordPress-vef ásamt starfsmönnum Símans. Sýnidæmi Hjálmars vekur athygli mína en það er kynning sem hann nefnir Auglýsingamiðlar framtíðarinanr“, flutt í október 2007 á ráðstefnu ÍMARK um rafræna markaðssetningu.
Hér til vinstri er dæmi um glærusýningu af Slideshare og það er víst engin tilviljun að hún fjallar einmitt um rafræna markaðssetningu:
Líklegt er að íslenska heiti netverslunarinnar verði nefnt Listatorg hér á landi. Hitt er að verslunin styður nánast hvaða tungumál sem er og því höfum við einnig tekið frá enska heitið Art4mart.
Við höfum velt fyrir okkur skipulagningu á þeirri þjónustu sem veitt er. Ef til vill er best að líkja þessu tækniumhvefi við hefðbundnar verslunarmiðstöðvar, sem nefndar eru “Mall” á ensku. Lesa meira »
Hugtakið blogg, sem við kjósum hér að kalla netskrif, hefur að sumu leyti á sér dálítið neikvæðan spimpil. Kemur innihaldið þar til sem margir kalla innihaldslítið þras. Hinu verður að halda til haga að blogg er vísast einn algengasti tjáningarmátinn í nútímanum, a.m.k. í Netheimum. Lesa meira »
Vefir á viðskipgtagrundvelli verða sífellt meira áberandi nú á dögum og er því spáð að verslun og viðskipti á Netinu muni sækja mög fram á næstunni. Því má halda fram með rökum að möguleikar almennings til að stunda við skipti á netinu séu um margt óháðir efnahag. Stofnkostnaður þarf ekki að vera mikill og hagnaður af sölu og dreifingu vöru og þjónustu getur dreifst á margar hendur. Lesa meira »