Blogg fyrir Listatorg
Þetta vefsvæði er hugsað fyrir einstaklinga og hópa sem aðild eiga að Listatorgi en það er þjónustumiðstöð, netverslun og jafnframt eins konar tengslanet í viðskiptatilgangi fyrir listunnendur.
Listatorg rekur verslunarmiðstöð á netinu sem felur í sér að henni má skipta upp í margar sjálfstæðar verslanir sem byggja þó allar á sameiginlegum gagnagrunni. Listaverk á söluskrá skiptast í fimm meginflokka, myndlist, tónlist, listiðnað, ljósmyndun og heimilisiðnað. Verslunin styður nánast hvaða tungumál sem er. Auðvelt er að setja vörulýsingar í blokkir sem kallaðar eru fram í samræmi við fjölda tungumála. Greiðslugátt verslunarinnar er viðurkennd og vottuð af íslenskum aðilum á sviði netviðskipta.
Netskrif er sjálfstæður hluti af Listatorgi. Hver sá sem skrásetur sig á Lstatorg fær gjaldfrjálsan aðgang að Netskrifum. Hann hefur þá eignast sitt eigið vefsvæði á hinum vinsæla bloggmiðili, Wordpress, til að kynna vörur sínar í versluninni og ennfremur önnur vefsetur sem hann kann að halda úti eða eiga aðild að um sama efni. Ekki er nauðsynlegt að hafa sérþekkingu í vefsíðugerð og aðgengilegar leiðbeiningar verða til staðar á hér Netskrifum.
Hér að neðan er skýringarmynd af kerfisuppbyggingu Listatorgs. Fleiri sambærileg tengslanet eru í vinnslu, m.a. menntatorg.
WordPress er vinsælasta bloggkerfi heims í dag. Kerfið er afar sveigjanlegt og hægt er að setja inn þúsundir svokallaðra íbóta (plugins) til að efla virkni þess og til þess að láta það mæta ólíkum þörfum. WordPress þar því alls ekki að vera einungis bloggkerfi heldur má einnig nýta það til að hanna og halda úti flóknum vefsetrum ef því er að skipta. Sjálfgefinn vefritill kerfisins er ekki sérlega burðugur. Hann er auðvitað þægilegur til að halda úti bloggskrifum en þeim sem fást við vefgerð almennt finnst lítið til koma. Myndin hér að neðan sýnir sjálfgefna ritilinn.

Við höfum nú skipt þessum ritli út fyrir mjög öflugum vefritli, TinyMCE Advanced sem hér sést að hluta. Notandi getur valið sér hnappa fyrir nánast hvaða aðgerð sem er í vefgerð og skipt þeim út að vild. Vinnuborðið mitt lítur nú svona út:

Svo má með auðveldum hætti draga inn á vinnuborðið fjölda annarra aðgerðarhnappa eða skipta út fyrir þá sem fyrir eru. Hér kemur að lokum allt safnið:

Unnið er að aðlögun Netskrifa fyrir viðskiptatengda bloggvefi og kemur þar margt til. Fyrst í forgangsröðinni er að gera notendum sem allra auðveldast að tengjast efni sem þeir kunna að eiga á svonefndum tengslanetum. Rafræn markaðssetning söluaðila á Listatorgi á margt sameiginlegt með þeim sem fást við svokallaða “niche” markaðssetningu eins og hún er nefnd í fræðum þar um. Ein leiðin í kynningarstarstarfinu er að leita uppi þá sem hafa sömu áhugamál, eru að selja sambærielgar vörur. Meira um það í kynningarefni og á námskeiðum en hér koma tengslanetin að miklu gagni og því er mikilvægt að Netskrifin okkar séu móttækileg fyrir áhugaverðu aðfengnu efni.
Þorvaldur Pálmason, thpalma@dreifmennt.com - Sími: 869-1200

