Listatorg - Netskrif

Kynningavefir fyrir söluaðila á Listatorgi

Efnissafn July, 2008

Tónlistarhátíð unga fólksins 2008

Höfundur Þorvaldur Pálmason þann 30th July 2008

Tónlistarhátíð unga fólksins 2008
Tónleikaröð í Salnum Kópavogi Lesa meira »

Fært á Tilkynningar | Engin ummæli »

Sylluskrif (Niche)

Höfundur Þorvaldur Pálmason þann 28th July 2008

Þeir sem taka sér fyrir hendur að selja vöru eða þjónustu á Netinu myndu eflaust hugsa sem svo, að þeim mun fleiri sem kæmu inn á vefinn, þeim mun líklegra sé að söluvaran gangi út. Markaðssérfræðingar telja það fjarri sanni. Það er að vísu rétt að almenn aukin vefumferð er af hinu góða en ef meginmarkmiðið er að selja tilteknar vörur á svokölluðum syllumarkaði (niche) skiptir öllu máli að ná til þess markhóps sem áhuga hefur á viðfangsefninu. Lesa meira »

Fært á Viðskiptavefir | Engin ummæli »

Niche markaðssetning

Höfundur Þorvaldur Pálmason þann 28th July 2008

“Niche” markaðssetning er skipulögð aðferð í rafrænum viðskiptum á Netinu og afar fyrirferðarmikil. Í íslenskri þýðingu er talað um syllumarkað og einnig sérmarkað í þessu samhengi. Aðferðin byggist á að ná til markhópa á tilteknu þröngu sviði og tengjast þeim í Netheimum. Ýmislegt bendir til að þessi aðferð í markaðssetningu geti hentað vel þeim sem fást við listsköpun af einhverju tagi og hafa vilja og áræðni til að vinna sjálfir í að koma vörum sínum og þekkingu á markað. Lesa meira »

Fært á Viðskiptavefir | Engin ummæli »

Hvers virði er að þróa vefumferð?

Höfundur Þorvaldur Pálmason þann 24th July 2008

Þessari spurningu er ekki auðsvarað en er þó eitt hið allra mikilvægasta fyrir rafræn viðskipti á Netinu og raunar alla vefmiðlun. Vefur án umferðar er harla lítils virði. Þó kosta margir miklu til að koma sér upp heimasíðu, eins og það er kallað, án þess að gæta að framhaldinu. Hverjir skoða vefinn? Leiðir hann til aukinna viðskipta, samskipta eða njóta einhverjir góðs af? Lesa meira »

Fært á Vefumferð | Engin ummæli »

Slideshare - Til að miðla glærusýningum. Netskrif á Listatorgi

Höfundur Þorvaldur Pálmason þann 13th July 2008

 

  Tengslanet eru kjörin vettvangur til markaðs- og kynningarstarfs á Listatorgi. Slideshare er eitt þeirra. Þú skráir þig einfaldlega, hleður inn kynningarefninu þínu og svo er með auðveldum hætti hægt að birta glærusýningar beint í bloggfærslum hér á Netskrifum.

Ýmsir hafa kynnt þessa ágætu vefþjónustu hér á landi, m.a. Salvör Gissurardóttir, Sigurður Fjalar Jónsson og Hjálmar Gíslason sem heldur úti WordPress-vef ásamt starfsmönnum Símans. Sýnidæmi Hjálmars vekur athygli mína en það er kynning sem hann nefnir Auglýsingamiðlar framtíðarinanr“, flutt í október 2007 á ráðstefnu ÍMARK um rafræna markaðssetningu.

Hér til vinstri er dæmi um glærusýningu af Slideshare og það er víst engin tilviljun að hún fjallar einmitt um rafræna markaðssetningu:

 

Fært á Tengslanet | Engin ummæli »

Listatorg- Art4mart

Höfundur Þorvaldur Pálmason þann 11th July 2008

Líklegt er að íslenska heiti netverslunarinnar verði nefnt Listatorg hér á landi. Hitt er að verslunin styður nánast hvaða tungumál sem er og því höfum við einnig tekið frá enska heitið Art4mart.

Við höfum velt fyrir okkur skipulagningu á þeirri þjónustu sem veitt er. Ef til vill er best að líkja þessu tækniumhvefi við hefðbundnar verslunarmiðstöðvar, sem nefndar eru “Mall” á ensku. Lesa meira »

Fært á Viðskiptavefir | Ein ummæli »