Listatorg - Netskrif

Kynningavefir fyrir söluaðila á Listatorgi

Listatorg- Art4mart

Höfundur: Þorvaldur Pálmason on 11. July , 2008

Líklegt er að íslenska heiti netverslunarinnar verði nefnt Listatorg hér á landi. Hitt er að verslunin styður nánast hvaða tungumál sem er og því höfum við einnig tekið frá enska heitið Art4mart.

Við höfum velt fyrir okkur skipulagningu á þeirri þjónustu sem veitt er. Ef til vill er best að líkja þessu tækniumhvefi við hefðbundnar verslunarmiðstöðvar, sem nefndar eru “Mall” á ensku.

Við viljum helst að söluaðilar hjá okkur geti orðið eins sjálfstæðir og verða má og geti valið marvíslega þjónustupakka eftir hentugleikum. Eftirfarandi er í umræðunni:

  • Að einstaklingar (einyrkjar) í hópi listamanna geti einfaldlega keypt sölu- og eftir atvikum þjónustupakka í sjálfri aðalversluninni. Slíkt væri þá sambærilegt að reka blómasölu eða einhvers konar sölu-og kynningarbása á göngum verslunarmiðstöðva. Þessi einyrkjasala ef kalla má hana slíku nafni getur auðvitað orðið misjafnlega umfangsmikil og mishátt upphafsgjald þá eðlilegt.
  • Að hópar, formlegir eða óformlegir, samtök af ýmsu tagi og jafnvel gallerí geti keypt sölurými/sölubása sem væru að flestu leyti sjálfstæðar verslandir. Þær gætu svo keypt misstóra þjónustupakka eftir umfangi og eðli viðskiptanna.

Það sem gerir viðskiptasamtök af þessu tagi eftirsóknarverð er í fyrsta lagi sú hagkvæmni sem í því felst að sölukerfið byggist á sameiginlegum skráningargrunni. Ennfremur ætti samstarf um sameiginleg málefni og önnur einkenni sem gera félagsleg tengslanet (Social Networks) svo fjölmenn og eftirsóknarverð, að geta skilað árangursríku markaðs- sölu- og kynningarstarfi á alþjóðlegum vettvangi ekki síður en hérlendis.

Þá er vert að nefna mismunadi þjónustupakka og fræðslustarf á vegum Listatorgs. Margir eru þrautkunnugir WordPress og setja bara upp einfalda kynningavefi án hjálpar og blogga um sig og verk sín ekki síst. Aðrir eru skemur á veg komnir og sækja þá hjá okkur grunnnámskeið í að nota Netskrif og kynnast þeirri hugmyndafræði sem að baki liggur í viðskiptaskrifum á bloggvef sem þessum og þeirri samvinnu sem þarf til slík skrif skili árangri.

Nánari uppýsingar: thpalma@dreifmennt.is

Ein ummæli to “Listatorg- Art4mart”

  1. Konrad Skrifa ummæli:

    Þetta virðist vera spennandi verkefni og ef það virkar gefur það öllum sem stunda einhverskonar listiðnað kost á að að markaðssetja list sína á vefnum. Spurning. Er hægt að nálgast þessa heimasíðu á netinu svo maður geti skoðað það sem í boði er?

Skrifa ummæli

XHTML: Eftirfarandi umbrotstákn eru leyfileg:: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>