Hvers virði er að þróa vefumferð?
Höfundur: Þorvaldur Pálmason on 24. July , 2008
Þessari spurningu er ekki auðsvarað en er þó eitt hið allra mikilvægasta fyrir rafræn viðskipti á Netinu og raunar alla vefmiðlun. Vefur án umferðar er harla lítils virði. Þó kosta margir miklu til að koma sér upp heimasíðu, eins og það er kallað, án þess að gæta að framhaldinu. Hverjir skoða vefinn? Leiðir hann til aukinna viðskipta, samskipta eða njóta einhverjir góðs af?
Ég hef skoðað marga vefi undanfarið í tengslum við þróunarverkefnið okkar, Listatorg og fæstir þeirra hafa tæknilegar forsendur til að auðvelt sé að finna þá á leitarvélum.
Þeir sem tileinka sér það sem til þarf, svo að auka megi vefumferð, eru um leið að auka til mikilla muna virði þess sem þeir hafa þegar lagt í við að koma sér upp heimasíðu og viðhalda henni. Neðst á þessum bloggvef er tenging í Amazon þar sem reynt er að safna saman sölubókum um þessi fræði og annað sem tengist rafrænum viðskiptum. Ég hef skoað bækur um þetta efni á Amazon og hér til vinstri er ein sem ýmsir mæla með.
Lýsing á Amazon:
Það er samt ekki úr vegi að skoða hvað hægt er að fá án endurgjalds. Af samskiptum mínum undanfarið við aðila sem bjóða fram þjónustu og ráðgjöf í heimi netviðskipta er ég alveg sannfærður um að fylgni milli gæða og verðs er víða jafnvel minni en engin.
Ástaða er til að benda hér á netbók (eBook) sem heitir Instant Buzz eða “Instant Buzz Mastery”. Ekki einasta að þar er kennt hvernig auka má vefumferð heldur einnig að veitt er ágæt fræðsla um ýmis handhæg tól og tæki sem nota má við þessi verk sem eru í senn flókin og tímafrek. Þetta kennsluefni er hvort heldur fyrir byrjendur eða lengra komna og ánægjulegt að geta þess hér að það er án endurgjalds. Reyndar er boðið upp á þátttöku í tengslaneti fyrir $9.95 en er þó aðeins valkostur. Rétt er að geta þess í lokin að kennsluefninu fylgir listi yfir, að talið er, 15 bestu aðilana sem bjóða fríar auglýsingar á Netinu.

