Slideshare – Til að miðla glærusýningum. Netskrif á Listatorgi
Höfundur Þorvaldur Pálmason þann 13th July 2008
| Tengslanet eru kjörin vettvangur til markaðs- og kynningarstarfs á Listatorgi. Slideshare er eitt þeirra. Þú skráir þig einfaldlega, hleður inn kynningarefninu þínu og svo er með auðveldum hætti hægt að birta glærusýningar beint í bloggfærslum hér á Netskrifum.
Ýmsir hafa kynnt þessa ágætu vefþjónustu hér á landi, m.a. Salvör Gissurardóttir, Sigurður Fjalar Jónsson og Hjálmar Gíslason sem heldur úti WordPress-vef ásamt starfsmönnum Símans. Sýnidæmi Hjálmars vekur athygli mína en það er kynning sem hann nefnir Auglýsingamiðlar framtíðarinanr“, flutt í október 2007 á ráðstefnu ÍMARK um rafræna markaðssetningu. Hér til vinstri er dæmi um glærusýningu af Slideshare og það er víst engin tilviljun að hún fjallar einmitt um rafræna markaðssetningu: |
Fært á Tengslanet | Engin ummæli »
