Listatorg - Netskrif

Kynningavefir fyrir söluaðila á Listatorgi

Efnissafn 'Tilkynningar' Efnisflokkur


Maríudagur í Strandarkirkju í Selvogi sunnudaginn 17. ágúst

Höfundur Þorvaldur Pálmason þann 13th August 2008

Messa, fyrirlestur og tónleikar.

Ég nýt þeirra forréttinda að fá ýmsar tilkynningar um listir og menningu á póstlista starfsmanna Háskóla Íslands. Hér er ein frá sóknarpresti Strandakirkju, Pétri Péturssyni:

Strandarkirkju í Selvogi var í öndverðu helguð Maríu mey og það er gömul hefð að halda Maríumessu um miðjan ágúst til að minnast helgisagnarinnar um himnaför hennar. Mörg af fegurstu tónverkum kristinnar kirkju hafa verið samin Maríu til dýrðar. Pétur Pétursson prófessor predikar í messunni í Strandarkirkju á sunnudaginn og séra Sigurður Árni Þórðarson og Hulda María Mikaelsdóttir djákni þjóna fyrir altari. Eftir messu flytur Ásdís Egilsdóttir dósent erindi sem hún nefnir Drottning dýrðar. Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona og Elísabet Waage hörpuleikari sjá um tónlistarflutninginn og leiða safnaðarsöng. Þær flytja m.a. úrval af Maríuljóðum við lög íslenskra og erlendra tónskálda. Í veitingastofunni T-bæ í Selvogi er hægt að kaupa veitingar. Einnig getur fólk haft með sér nesti og verið úti undir berum himni ef veður leyfir.

Fært á Tilkynningar | Engin ummæli »

Tónlistarhátíð unga fólksins 2008

Höfundur Þorvaldur Pálmason þann 30th July 2008

Tónlistarhátíð unga fólksins 2008
Tónleikaröð í Salnum Kópavogi Lesa meira »

Fært á Tilkynningar | Engin ummæli »