Höfundur Þorvaldur Pálmason þann 28th July 2008
Þeir sem taka sér fyrir hendur að selja vöru eða þjónustu á Netinu myndu eflaust hugsa sem svo, að þeim mun fleiri sem kæmu inn á vefinn, þeim mun líklegra sé að söluvaran gangi út. Markaðssérfræðingar telja það fjarri sanni. Það er að vísu rétt að almenn aukin vefumferð er af hinu góða en ef meginmarkmiðið er að selja tilteknar vörur á svokölluðum syllumarkaði (niche) skiptir öllu máli að ná til þess markhóps sem áhuga hefur á viðfangsefninu. Lesa meira »
Fært á Viðskiptavefir | Engin ummæli »
Höfundur Þorvaldur Pálmason þann 28th July 2008
“Niche” markaðssetning er skipulögð aðferð í rafrænum viðskiptum á Netinu og afar fyrirferðarmikil. Í íslenskri þýðingu er talað um syllumarkað og einnig sérmarkað í þessu samhengi. Aðferðin byggist á að ná til markhópa á tilteknu þröngu sviði og tengjast þeim í Netheimum. Ýmislegt bendir til að þessi aðferð í markaðssetningu geti hentað vel þeim sem fást við listsköpun af einhverju tagi og hafa vilja og áræðni til að vinna sjálfir í að koma vörum sínum og þekkingu á markað. Lesa meira »
Fært á Viðskiptavefir | Engin ummæli »
Höfundur Þorvaldur Pálmason þann 11th July 2008
Líklegt er að íslenska heiti netverslunarinnar verði nefnt Listatorg hér á landi. Hitt er að verslunin styður nánast hvaða tungumál sem er og því höfum við einnig tekið frá enska heitið Art4mart.
Við höfum velt fyrir okkur skipulagningu á þeirri þjónustu sem veitt er. Ef til vill er best að líkja þessu tækniumhvefi við hefðbundnar verslunarmiðstöðvar, sem nefndar eru “Mall” á ensku. Lesa meira »
Fært á Viðskiptavefir | Ein ummæli »
Höfundur Þorvaldur Pálmason þann 26th June 2008
Hugtakið blogg, sem við kjósum hér að kalla netskrif, hefur að sumu leyti á sér dálítið neikvæðan spimpil. Kemur innihaldið þar til sem margir kalla innihaldslítið þras. Hinu verður að halda til haga að blogg er vísast einn algengasti tjáningarmátinn í nútímanum, a.m.k. í Netheimum. Lesa meira »
Fært á Viðskiptavefir | Engin ummæli »
Höfundur Þorvaldur Pálmason þann 23rd June 2008
Vefir á viðskipgtagrundvelli verða sífellt meira áberandi nú á dögum og er því spáð að verslun og viðskipti á Netinu muni sækja mög fram á næstunni. Því má halda fram með rökum að möguleikar almennings til að stunda við skipti á netinu séu um margt óháðir efnahag. Stofnkostnaður þarf ekki að vera mikill og hagnaður af sölu og dreifingu vöru og þjónustu getur dreifst á margar hendur. Lesa meira »
Fært á Viðskiptavefir | Engin ummæli »